Halahestar.com

Upphafssíða Ræktunin/Zuchtziel
Hægt er að sjá upplýsingar um okkur undir slóðinni "um okkur" - "staðsetning". Einnig er hægt að senda okkur tölvupóst á póstfang svavar@halahestar.com

Ræktunin Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Administrator   
Miðvikudagur, 03. Júní 2009 20:40

Það urðu þáttarskil í hrossaræktinni á Hala upp úr 1980 þegar Jón keypti skagfirska stóðhestinn Þokka frá Garði. Þokki er fyrir löngu orðinn landsþekktur og sannað sig svo um munar sem kynbótahestur. Hann vakti þó ekki sérstaka athygli fyrr en afkvæmi hans fóru að koma fram.

Á Landsmóti 1990 kom Þokki fyrst fram með afkvæmi sem voru öll fædd á Hala. Stóð hann efstur stóðhesta sem kepptu til fyrstu verðlauna. Um hæfileika afkvæma Þokka var sagt í dómsorðum: “...Töltið er frábært, brokkið gott og skeiðið mikið. Lundin er samvinnuþýð og traust, viljinn notadrjúgu ...Þau eru virkjamikil, mjög ganghrein og þjál reiðhross sem fara vel.”

Á Landmóti 1994 kom Þokki öðru sinni fram með afkvæmi. Hlaut hann þar 1. sætið í flokki stóðhesta sem kepptu um Heiðursverlaun fyrir afkvæmi. Að launum fékk hesturinn Sleipnisbikarinn sem er æðsta viðurkenning sem kynbótahross getur hlotið.

Ræktunarmarkmið.

Stefnt er að því að viðhalda þeim árangri sem áunnist hefur með ræktunarstarfinu á undangengnum árum, ekki síst fyrir tilstuðlan Þokka frá Garði. Hreingengni, rými og frábært tölt hefur verið einkenni á hrossum frá Hala.

Markmiðið er að rækta bæði getumikla gæðinga svo og góða, geðprúða reiðhesta fyrir almenning.

Zucht :

Die meisten unserer Zuchtstuten sind Nachkommen des beruehmten Hengstes Þókki frá Garði, der 1990 auf dem Landsmót den ersten Preis fuer Nachkommen erhielt und waren damals alle gezeigten Nachkommen in Hala gezogen. Der Richterspruch zu Þokkis Nachkommen lautete : "..Tölt ist sehr gut, Trab gut und Pass sehr gut. Die Nachkommen sind zuverlaessige Reitpferde und arbeiten gerne mit. Temperament ist sehr gut und die Gaenge klar getrennt. 

!994 bekam Þokki den 1. Platz fuer Nachkommen und ihm wurde dort der Sleipnispokal verliehen. Dies ist die höchste Auszeichnung die ein Zuchthengst bekommen kann!!

Unser Zuchtziel :

Wir versuchen die alt bewaehrte Zucht die auf Þokki frá Garði begruendet ist  fortzufuehren und sein Erbe zu erhalten - Ganghreinheit, sehr guten Tölt, Raumgriff und Pass.

Unser Ziel ist es Pferde mit gutem Gangpotenzial und einem angenehmen Temperament sowie gutem Charakter zu zuechten. Unser Schwerpunkt liegt in der Zucht von guten Fuenfgangpferden!

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 25. Ágúst 2009 17:12